1. |
Framhjáhaldsþrá
01:37
|
|||
Ég er með einum of mörg eistu
Vantar klárlega kærustu
Til að fitla við tólin smá
Þar til að þau verða blá
Ég er alls ekki fallegur
Hvorki vel vaxinn né settlegur
Hef nánast enga mannkosti
En er sífellt í leit að kvenkosti
Ég er með lint áhald
Sem þyrstir í framhjáhald
Þegar ég loksins kærustu finn
Hleypur blóð í vininn minn
Fer strax í aðrar konur að spá
Til að uppfylla mína framhjáhaldsþrá
Er nú á leið upp í annað ból
Finn hvar titrar mitt símtól
Sé þar bíður mín SMS
„Þér er dömpað, bless, bless, bless“
Aldrei tekst mitt framhjáhald
Því er ég alltaf með lint áhald
|
||||
2. |
100%
01:32
|
|||
Skatt á daga
Skatt á nætur
Skatt á vikur
Skatt á árið
Skatt á svefninn
Skatt á vöku
Skatt á öndun
Skatt á kynlíf
Skatt á heilann
Skatt á hugsun
Skatt á hjartað
Skatt á sálina
Skatt á sýnir
Skatt á drauma
Skatt á vonir
Skatt á þrárnar
Skatt
Skatt
Skatt
100%
Skatt á Mánann
Skatt á HaMinn
Skatt á Dúndra
Skatt á Fossinn
Skatt á skemmtun
Skatt á tónlist
Skatt á pönkið
Skatt á Tuðið
Skatt
Skatt
Skatt
100%
|
||||
3. |
Lofsöngur
01:11
|
|||
Ekkert nema spráng á Norður-Færeyjum
Surtsey er líka Norður-Færeyjar
Rokið er prýðilegt á Norður-Færeyjum
Lundinn er farinn frá Norður-Færeyjum
Árni Jóns er kúl
Árni Jónsson er flottur
Árni Johnson er kúl
Áfram Árni Jóns
Göng til Norður-Norður-Færeyja
Rafmagn frá Norður-Norður-Færeyjum
Sandeyjarhöfn á Norður-Norður-Færeyjar
Sjálfstæði frá Norður-Norður-Færeyjum
Árni Jóns er kúl
Árni Jónsson er flottur
Árni Johnson er kúl
Áfram Árni Jóns/Árna Johnsen á þing
|
||||
4. |
Vegareiði
01:46
|
|||
Umferðin er ömurleg og ég kemst ekki neitt
Pikkfastir Yaris-arnir fara ekki neitt
Nagladekk eru óþörf en ég nota þau samt
Haltu kjafti Dagur Bé þau drífa bara allt
Miðstöðin blæs skítköldu og ég sé ekkert út
Götur illa mokaðar og allt er út í kúk
Lendi á eftir vörubíl sem dreifir á mig salti
Haltu kjafti Dagur Bé, já haltu bara kjafti
Slabb og slor og viðbjóður og mér er drullukalt
Þarf að komast inn og fá í kroppinn malt
Það bætir, hressir, kætir mína léttu lund
Eins og tópas gerir er ég fer í sund
Það gefur enginn stefnuljós og ég veit ekki neitt
Þeir sem dóla á vinstri akrein ætt´að keyra greitt
Bensínið er drulludýrt en ég kaupi það samt
Ég keyri svo á Dag Bé og kannski út í kant
Slabb og slor og viðbjóður og mér er drullukalt
Þarf að komast inn og fá í kroppinn malt
Það bætir, hressir, kætir mína léttu lund
Eins og tópas gerir er ég fer í sund
|
||||
5. |
Langanir
01:55
|
|||
Við viljum frí
Miklu meira frí
Ekkert nema frí
Óendanlegt frí
Við viljum grill
Miklu meira grill
Ekkert nema grill
Óendanlegt grill
Við viljum flesk
Miklu meira flesk
Ekkert nema flesk
Óendanlegt flesk
Við viljum bjór
Miklu meiri bjór
Ekkert nema bjór
Óendanlegan bjór
Við fáum ekkert af því sem við þráum!
Við viljum rúnk
Miklu meira rúnk
Ekkert nema rúnk
Óendanlegt rúnk
Við viljum prúnk
Miklu meira prúnk
Ekkert nema prúnk
Óendanlegt prúnk
Við viljum krúnk
Miklu meira krúnk
Ekkert nema krúnk
Óendanlegt krúnk
Við viljum ræl
Miklu meira ræl
Ekkert nema ræl
Óendanlegt ræl
Við fáum ekkert af því sem við þráum!
Við viljum pönk
Miklu meira pönk
Ekkert nema pönk
Óendanlegt pönk
Við viljum pytt
Miklu stærri pytt
Alla í pytt
Hyldjúpan pytt
Við viljum stuð
Miklu meira stuð
Ekkert nema stuð
Óendanlegt stuð
Við viljum tuð
Miklu meira tuð
Ekkert nema tuð
Við erum Tuð
Við fáum ekkert af því sem við þráum!
Ekkert nema
Ekkert nema
Ekkert nema
Ekkert nema Tuð
|
||||
6. |
Lífið er óhentugt
01:11
|
|||
Ömurlegt er að vera til
Hvaða rugl er það að vera til?
Það er langverst að vera til
Ég nenni ekki að vera til
Hamingju í herðar ég klýf
Hjartað vil ég skera út með hníf
Ég vil ekkert helvítis víf
Hættu að angra mig djöfulsins líf
Settu mig í fallbyssu og skjóttu mér burt
Hengd´á mig hvítlauk og stingd´í mig staut
Krossfestu mig og skerð´á mig gat
Grafðu djúpa holu og hrintu mér fast
Ég vil bara viljaleysi
Mitt eina gagn er gagnsleysi
Ég trúi bara á trúleysi
Tilgangur minn er tilgangsleysi
Settu mig í fallbyssu og skjóttu mér burt
Hengd´á mig hvítlauk og stingd´í mig staut
Krossfestu mig og skerð´á mig gat
Grafðu djúpa holu og hrintu mér fast
|
||||
7. |
Einræði
01:46
|
|||
Ég var kosinn
en ekki þú
Hættu því að
gagnrýna mig nú
Ég hef valdið
í mínum höndum
Þið eruð öll
í mínum böndum
Mínar skoðanir
minn vilji
Ekkert annað
vil að þið skiljið
Þjóðaratkvæði
eru tilgangslaus
Því að ég er maðurinn
sem að fólkið kaus
Hærri laun fyrir mig
Fleiri bíla fyrir mig
Meira af öllu fyrir mig
Mér er alveg skítsama um þig
Útboð er óþarft
því ávallt má finna
Góðan mann meðal
vina minna
Stórfín loforð
til að efna
Þrusu slagorð
eru mín stefna
Út á landi
heimskur lýður
Enginn fjandi
ávalt þýður
Laumuorða
kennd við fálka
Á bláum borða
til minna skálka
Hærri laun fyrir mig
Fleiri bíla fyrir mig
Meira af öllu fyrir mig
Mér er alveg skítsama um þig
Alla fossa
verður að virkja
Eigin bossa
munum styrkja
Hávær mótmæli
verða enduð
Engin andmæli
ÉG ER GUÐ
Ég við völd að eilífu
Mig við völd að eilífu
Þjóðin veit að
ég er, ég er, ég er
Þið án valda að eilífu
Þið undir mér að eilífu
Þjóðin veit að
ég er, ég er, ég er
Minn vilji að eilífu
Ég mun lifa að eilífu
Þjóðin veit að
ég er, ég er, ég er, ég er,
ég er, ég er, ég er, ég er,
ég er,ég er, ég er, ég er,
ég er, ég er Guð
|
||||
8. |
Djakk & Kók
01:24
|
|||
Latur! Hatur
kraumar. Draumar
slæmir. Tæmir
fötur, götur
mælir, bælir
væti. Blæti!
(og) Djakk & kók
Þið! Við
svangir! Langir
dagar. Magar
svelta. Velta
vöngum. Löngum
stundum, stundum!
(og) Djakk & kók
Ansans! Tímans
span. Van-
líðan, síðan
bætist. Kætist
Lúðvík, Súðavík
á. já!
(og) Djakk & kók
|
||||
9. |
Atvinnufrjáls
01:25
|
|||
Vakna eftir hádegi
og bursta kannski tennurnar
Glugga smá í Fréttablaðið
þó það sé síðan frá sunnudag
Læka allt og share-a öllu
ekkert framhjá mér á Facebook fer
er ég sit á dollunni með drullu
pappírinn búinn, beint í sturtu fer
Já það er flott að vera atvinnufrjáls
Já það er hipp að vera atvinnufrjáls
Já það er kúl að vera atvinnufrjáls
Já það er töff að vera atvinnufrjáls
Klæðist baðslopp, hell´uppá kaffi
og geri ekkert næstu klukkutíma
sest í sófann og spila smá FIFA
fer á Tinder og skoða gellur í síma
Engir yfirmenn, engin vekjaraklukka
til að slít´í sundur fullkomin dag
Ekkert hópefli. Laus við kærur fyrir
kynferðislegt ofbeldi á vinnustað
Já það er flott að vera atvinnufrjáls
Já það er hipp að vera atvinnufrjáls
Já það er kúl að vera atvinnufrjáls
Já það er töff að vera atvinnufrjáls
|
||||
10. |
Ráðherrann
02:07
|
|||
Í sakleysi mínu ég fór niðrí bæ
Við barborðið óð upp að mér mær
Hún var mjög áköf og tróð mér um tær
Ég reyndi hvað ég gat að færa mig fjær
Iðnaðarráðherra reyndi við mig
á Ölstöfunni
á Ölstofunni
Iðnaðarráðherra reyndi við mig
á Ölstöfunni
Fæ ég ekki frið
Ég viss´ða ekki þá en nú veit ég betur
Með einbeittann brotavilja, ohh, konutetur
Mann hún þefaði uppi sem í sig setur
Mann sem sennilegast vonandi eitthvað getur
Iðnaðarráðherra reyndi við mig
á Ölstöfunni
á Ölstofunni
Iðnaðarráðherra reyndi við mig
á Ölstöfunni
Fæ ég ekki frið
Á hlaupum ég flúði af brotastað
Mitt sálartetur dregið niður í svað
Andvökunætur, martraðir og hvað
get ég sagt, þetta átti sér stað
Iðnaðarráðherra reyndi við mig
á Ölstöfunni
á Ölstofunni
Iðnaðarráðherra reyndi við mig
á Ölstöfunni
Fæ ég ekki frið
|
||||
11. |
Tilfinningamaðurinn
01:50
|
|||
Úti í garði spóka mig og sólin skín á mig
Fuglarnir syngja og ég raula bara með
Velti mér í grasinu og lykta af blómunum
Vellíðan og hamingja og hellingur af ást
En svo kemur þrumuský!
Og hvað geri geri geri ég þá?
Ég sýni tilfinningar
Alls konar tilfinningar
Fullt af tilfinningar
Ég fíla tilfinningar
Heima hjá ömmu er alltaf voða gott
Við fáum okkur bæði kökur og mjólk
Amma prjónar á mig nýju lopapeysuna
Vellíðan og hamingja og hellingur af ást
En svo raknar peysan upp!
Og hvað geri geri geri ég þá?
Ég sýni tilfinningar
Alls konar tilfinningar
Fullt af tilfinningar
Ég fíla tilfinningar
Stórleikur í höllinni, ég klappa alltaf mest
Þjóðsöngurinn grætir mig þegar ég syng með
Smáblóm, guð og titrandi tár
Þjóðarstolt og hamingja og hellingur af ást
Enginn bjór á vellinum!
Og hvað geri geri geri ég þá?
Ég sýni tilfinningar
Alls konar tilfinningar
Fullt af tilfinningar
Ég fíla tilfinningar
|
||||
12. |
Þingdólgar
01:30
|
|||
Bjarni Benediktsson
Eygló Harðardóttir
Guðmundur Steingrímsson
Ögmundur Jónasson
Illugi Gunnarsson
Frosti Sigurjónsson
Katrín Jakobsdóttir
Össur Skarphéðinsson
Hanna Kristjánsdóttir
Sigríður Ingadóttir
Svandís Svavarsdóttir
Vigdís Hauksdóttir
Þetta er allt fólk sem að ég hata
Falskir, fávitar og fífl
Lágtvirtir þingdólgar
sem vinna við að ljúga að þjóðinni!
Sigurður Jóhannsson
Ragnheiður Árnadóttir
Oddný Harðardóttir
Páll Pálsson
Einar Guðfinnsson
Ásmundur Daðason
Guðbjartur Hannesson (Hvíldu í friði)
Elsa Arnardóttir
Kristján Júlíusson
Steingrímur Sigfússon
Kristján Möller
Sigmundur Gunnlaugsson
Þetta er allt fólk sem að ég hata
Falskir, fávitar og fífl
Lágtvirtir þingdólgar
sem vinna við að ljúga að þjóðinni!
|
||||
13. |
Vorlag
01:45
|
|||
Kaldur, hrakinn, lyklalaus
Veðrið alltaf ömurlegt
Jakkinn týndur, ber að neðan
Verð að komast heim til mín
Í áfengisvímu sé ég dyrnar
Hringi bjöllunni, enginn svarar
Lem á hurðina ekkert svar
Afhverju hleypir mér enginn inn?
Alltaf drulluveður á skítaskerinu
Aldrei meira en 15 gráður
Aldrei minn´en 15 vindstig
Aldrei rigning beint að ofan
Hrútfúl helvítis hliðarrigning
Aldrei vindur úr einni átt
Fokking fok frá fjórum fjöllum
Ég er fokking farinn burt
Hring´í konun´á miðhæðinni
Hring´í mömmu, „mér er kalt“
Enginn kemur mér til hjálpar
Er þetta mín hinsta stund?
Ræðst á dyrnar enn og aftur
Reyn´að brjóta mér leið inn
Verð að sleppa úr þessu veðri
Afhverju hleypir mér enginn inn?
Alltaf drulluveður á skítaskerinu
Aldrei meira en 15 gráður
Aldrei minn´en 15 vindstig
Aldrei rigning beint að ofan
Hrútfúl helvítis hliðarrigning
Aldrei vindur úr einni átt
Fokking fok frá fjórum fjöllum
Ég er fokking farinn heim
|
||||
14. |
Albugun
01:41
|
|||
Lagnirnar eru stíflaðar
Ryksugan slær út hverfinu
Myglusveppur útum allt
Óþef leggur frá baðherberginu
Ofninn brennir naan-innaní-sér
Gluggamóða skyggir á útsýnið
Bjallan biluð, stiginn háll
Marrandi gólf og bank í ofnunum
Veggjatítlur, silfurskottur
Dritbjöllur og húsadrekar
Saggavinir, saurþjófar
Brauðtítlur og blökkumaur
Hundaskítur útum allt
Haustlauf af trjánum stífla niðurföll
Breimandi kettir, alltaf í sleik
Unglingahópar, verri þúsundfalt
Notaðir smokkar með lélegu sæði
Æluslettur í þvagfýluportinu
Flautandi strætó, ekki á leið
Sunnudagsmorgun kirkjuklukkurnar
Veggjatítlur, silfurskottur
Dritbjöllur og húsadrekar
Saggavinir, saurþjófar
Brauðtítlur og blökkumaur
Tölvan er að skíta á sig
Bölvaður hávaði er í viftunni
Bláskjár dauðans, endalaust
Of fá núll á harða drifinu
Niðurhalið er alltof hægt
Aldrei hef ég nægt gagnamagn
Klámið bara hálfklárað
Engir reklar fyrir hljóðkortið
Veggjatítlur, silfurskottur
Dritbjöllur og húsadrekar
Saggavinir, saurþjófar
Brauðtítlur og blökkumaur
|
||||
15. |
Í styttra lagi
00:03
|
|||
Þetta lag er stutt
|
||||
16. |
LÍN allt mitt líf
01:15
|
|||
Hola
Buenas
¿Cómo estás?
Kann ekki meiri spænsku í dag
Lærði samt hana í 4 ár
Reykti, drakk og reið. Sleikti og saug
Ég er gagnslaust helvítis grey
LÍN allt mitt líf
Skuldirnar klýf
Verðbólgan stíf
LÍN allt mitt líf
Tvisvar á ári borga ég af
Safnast upp skuldir, kona og barn
Íbúð í bænum, fasteignalán
Settu mig niður í jörðina strax
LÍN allt mitt líf
Verðbólgan stíf
LÍN allt mitt líf
Skuldirnar klýf
|
||||
17. |
Af sem áður var
00:56
|
|||
Ófremdarástand í miðborginni er
Draugfullir unglingar og gamall maður ber
Barnungar stúlkurnar í allt of litlum fötum
Nýfermdir drengirnir í fötum með götum
Það er af sem áður var
ekkert hægt að gera þar
nema að horfa á allar stelpurnar
og skella sér í bað
Klukkan orðin eitt og ég er alltaf einn
Gæti orðið tveir ef ég væri bara fleiri
Skelli í mig tvöföldum svona til að ég þori
Það er þó samt útilokað að ég skori
Það er af sem áður var
ekkert hægt að gera þar
nema að horfa á allar stelpurnar
og skella sér í bað
Klukkan orðin þrjú og ég er ennþá einn
Djöfull er ömurlegt að vera svona einn
Tek upp símtólið og hringi í skvísu
Mamma sækir mig og við fáum okkur ýsu
Það er af sem áður var
ekkert hægt að gera þar
nema að horfa á allar stelpurnar
og skella sér í bað
|
||||
18. |
Þuklarinn á Næsta bar
02:06
|
|||
Hann fór alltaf inn á Næsta Bar
Inn á Næsta bar
Já inn á Næsta bar
Þar voru allar sætu stelpurnar
Með flottu rassana
Til að þukla þar
En nú er lokað á Næsta Bar
Næsta Bar
Já Næsta bar
Næst þarf þuklarinn á Næsta Bar
Að þukla á næsta bar
Við Næsta bar
Á næsta bar við Næsta bar
Eru engar stúlkur til
Að þukla þar
Hann var þuklaður af strákunum
Á næsta bar
Við Næsta bar
Hann hröklaðist út af næsta bar
Við Næsta bar
Inn á næsta bar
Næst þarf þuklarinn á Næsta Bar
Að þukla á næsta bar
Við næsta bar
|
Streaming and Download help
If you like Tuð, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp