1. |
Ekki hafa hátt
01:18
|
|||
Gott kvöld, kæri hlustandi
Við erum að fylgjast með þér sitjandi við tækið
Það er mjög ánægjulegt
Og við ætlum að passa okkar að spila fyrir ykkur falleg paunklög
og róleg
Og við ætlum ekki að hafa hátt
og ekki að hafa hátt
og ekki að hafa hátt
Því að við ætlum alls ekki að hafa hátt
og ekki að hafa hátt
og ekki að hafa hátt
Ekki að hafa hátt
Þetta eru sitjandi paunktónleikar
Þetta eru sitjandi paunktónleikar
Ú hú húhúhú
Þetta var nú kannski aðeins um of
Ég ætlaði svo sannarlega ekki að hrella ykkur með einhvurjum svona, einhvurjum svona látum og veseni
Og að ég tali nú ekki um þetta gítarsóló sem kom þarna
Úhhú hú hú
Ég vona að þið afsakið okkur
Því að við ætlum að ekki að hafa hátt
og ekki að hafa hátt
Við ætlum ekki að hafa hátt
og við ætlum ekki að hafa hátt
og við ætlum ekki að hafa hátt
og ekki að hafa hátt
Þetta eru sitjandi paunktónleikar
Þetta eru sitjandi paunktónleikar
Þetta eru sitjandi paunktónleikar
Þetta eru sitjandi paunktónleikar
Ekki hafa hátt!
|
||||
2. |
Lak lók
01:38
|
|||
Nútímasímar gera mig kjaftstopp
Hvernig tek ég mynd af mér í baðslopp?
Ýti á takka þar til að eitthvað gerist
Vona að til allra vina berist
Úúhh, síminn titrar endalaust
Allir elska sloppinn. Já, það er efalaust
Nei, hey, bíddu við! Hvað hef ég gert?
Hvaða mynd deildi ég og hvert?
Ég lak lók fyrir slysni
Æru mína missti
Framtíðin í frysti
Ekki deila!
Ég lak lók út á netið
Skaðann get vel metið
Skítinn hef ég étið
Ekki deila!
Reyni færslu að eyða en allt of seint
Skjáskot tekið og lóknum endurdeilt
Kominn er í þrot og stoltið sært
Af hverju get ég ekki á síma lært?
Vinurinn vakti ekki mikla lukku
Samstarfskonur allar frá mér stukku
Heyri þær pískra: "Er þetta allt?"
Hvað með lélega lýsingu og mér var kalt?!
Ég lak lók fyrir slysni
Æru mína missti
Framtíðin í frysti
Ekki deila!
Ég lak lók út á netið
Skaðann get vel metið
Skítinn hef ég étið
Ekki deila!
Ég lak lók fyrir slysni
Æru mína missti
Framtíðin í frysti
Ekki deila!
Ég lak lók út á netið
Skaðann get vel metið
Skítinn hef ég étið
Ekki deila!
|
||||
3. |
Fyrsta heims vandamál
01:37
|
|||
Þurrkatíðin, þyrmir að mér
Þrusu þunnur á þriðjudegi
Gosvatnsvélin er alveg gaslaus
Frekar skrælna en drekk af krana
Hungrið! Það sverfur að mér
Matarskortur í malla mínum
Nautalundin er enn gaddfreðin
Verð að láta humar nægja
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Vandamál, vandamál, vandamál, vandamál
Innyflin í miklu ólagi
Skyndilega skelfileg skita
Ekkert rafmagn á síma mínum
Verð að lesa á sjampóbrúsa
Tæknin af mér tekur valdið
Síminn semur og sendir skeyti
Autocorrect reddar drætti
“Deig um köku afla smá flott í sloppinn”
HA? Nei. Ég ætlaði skrifa:
“Feigum sviðum ekki okkar pott í toppinn”
NEI!!!! Ég meinti
“Eigum við ekki að fá okkur gott í kroppinn?”
Fokk! Ég er búinn að klúðra þessu
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Þriðja heims skilningsleysi er grafalvarlegt vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Vanda, vanda, vanda, vanda
Vandamál, vandamál, vanda-, mál
|
||||
4. |
Of brátt fjárútlát
01:28
|
|||
Þurfum enga sérfræðinga,
Hlustum einvörðungu á Inga
Ekkert borgum fyrir álit
Betur varið í svartan hárlit
Vaðlaheiðar - jarðargangna - útskots - baðkarið
Landeyjarhafnar - dælupramma - sandvörpu - armurinn
Dala - jökla - stíflu - virkjunar - jarðrasks - mótmæli
Borgarlínu - einkabíla - morðtilraunar - blús
Höldum óteljandi fundi
En bjóðum engum sem að mundi
þekkja eitthvað málið um
Því best við sjálfir vitum
Vaðlaheiðar - jarðargangna - útskots - baðkarið
Landeyjarhafnar - dælupramma - sandvörpu - armurinn
Dala - jökla - stíflu - virkjunar - jarðrasks - mótmæli
Borgarlínu - einkabíla - morðtilraunar - blús
|
||||
5. |
Afmælislagið
01:03
|
|||
Þetta er hann Bjössi, hann á afmæli
öldrunin er honum ekki beint í hag
Þetta er hún Guðrún, hún á afmæli
Hún er sirka 40 eða 50 ára í dag
Þetta er hann Sigurður, hann á afmæli
Þyrfti ég að giska á það, væri hann þrítugur
Þetta er hann Hrafnkell, hann á afmæli
Miðað við hárlínu er hann langt frá tvítugu
Þetta er hún Kristín, hún afmæli
Það er gaman!
Þetta er hann Gummi, hann á afmæli
Aldur og þroski, ekki samferða
Þetta er hún Anna, hún á afmæli
með mjöðm úr stáli og kynhvöt hálfgerða
Þó ógrynni af facebook kveðjum hrannist inn,
óðfluga styttist samt í dauða þinn
Þetta er hann Pálmi, hann á afmæli
Það er frábært!
Þetta er hann Finnur, hann á ekki afmæli
|
||||
6. |
Dyggðaskreyting
01:49
|
|||
Nei alls ekki. Neibb alls ekki. Nei
En það hljóta allir að sjá það fjandinn hafi það, hvað ég er góður
gaur.
Læt mig málið varða
Hef rosalega hátt
á samfélagsmiðlum
Uppfærð prófæl mynd
til stuðnings nýjum harmleik
Ábyrgð sýni og samstöðu
Tek öllum áskorunum
Siðferðislegir yfirburðir
Kertafleyting
til minningar um mannslíf
sem ég þurfti gúggla
Ég sjéra ívent
Blysför gegn stríði
í fjarlægu landi
Hvar það er á korti
ég mun senn komast að
Nei alls ekki. Nei alls ekki. Nei alls ekki. Nei
Hvaða máli skiptir það eiginlega, þó ég tali bara talið
og labbi ekki labbið
Hamra mínar skoðanir
á mac lyklaborð
Hungursneyð
Ég legg mitt af mörkum
Amen komment
Hjarta og sjér
Mótmæli
Ég tek þátt í þeim öllum
er í forsvari
fyrir réttum skoðunum
Fordómar
Ég fordæmi þá alla
Styð jafnlaunavottun
og hin og þessi kyn
Nei
|
||||
7. |
Vinur minn?
01:38
|
|||
Vinur minn er miklu vinsælli,
indælli og friðsælli
Ekki bara það, heldur flottari,
fróðari og frægari en ég
Hann er frumlegri og frjósamari,
fimari og fumlausari,
faglegri og fallegri
og fyndnari og föngulegri en …
Ég fæ aldrei úr honum
Hann stelur öllum konum
Hvers á ég að gjalda?
Þarf á drætti að halda
Ég fæ bara engan vegin skilið hvernig ég fæ ekki að ríða meira heldur en ég geri
Ég býð þessum konum öllum út á deit og ótrúlega næs við þær
Svo keyri ég þær heim daginn eftir, eða um kvöldið meira að segja
Og, og daginn eftir kíki ég svo aftur í heimsókn
Og það er einhvurn vegin tekið illa í það að ég kíki í heimsókn bara svona óumbeðið.
Ég er að reyna að vera rómantískur!
Hvaða rugl er þetta?
Og svo bara um kvöldið þegar ég reyni að koma aftur, þá er lögreglan komið í málið
Hvers á ég að gjalda?
Þarf á drætti að halda
Hvers á ég að gjalda?
Þarf á drætti að halda
|
||||
8. |
Ekki gera mig arflausan
01:36
|
|||
Jiminn eini, hvernig geturu verið svona leiðinleg amma?
Og hún er búin hringja í mig margoft í dag maður
Hvað er eiginlega að henni?
Kolklikkuð móðurmóðir mín
Vanþakklát og villir mönnum sýn
Vita gagnslaus með allt á hornum sér
Heimtar allt, gengur fram af mér
... ekki gera mig geðveikan
Snarbiluð móðurmóðir kær
Með hala, klaufir og manndrápsklær
Þú ert gömul, andstyggileg
Sóun á súrefni, óæskileg
... ekki gera mig geðveikan
... ekki gera mig geðveikan
Uhh hvað er eiginlega hérna á símaborðinu þínu?
Óopnaður álagningaseðill frá ríkisskattstjóra
og.... og... bíddu nú við, heyrðu hvað eru þetta eiginlega mörg núll þarna
Hvaða koma eiginlega þessar fiskveiðiheimildir?
Flækist um í fyrirtækjaskrá
Fæ staðfest hvað elsku amma á
Ævikvöldin með þér vil njóta
Eygi von um erfðarkvóta
... ekki gera mig arflausan
Ástkæra yndið mitt eina
Ertu svolítið farin að gleyma?
Skrifaðu hér, undirrita, já
33% í erfðaskrá!
... ekki gera mig arflausan
... ekki gera mig arflausan
... ekki gera mig arflausan
|
||||
9. |
COVID alla daga
01:15
|
|||
Útlægur af vinnustaðnum --- Vinnufriður
Sit ég heima á nærhaldinu --- Ekkert webcam
(Á) öllum fundum mute-a flesta --- Missi af engu
Auto-reply svarar öllu --- Já, ekkert mál
Vinn á meðan hörðum höndum --- Heiðarlegt
Verkin klárast hvert af öðru --- Tíminn
Líður eins og góðum þjóðþegn --- Duuuug
Legg mig smá um miðjan daginn --- Endurnærður
Vildi að alltaf væri COVID
Vildi að alltaf væri COVID
Vildi að alltaf væri COVID
Vildi að alltaf væri COVID
Nýir tímar, þarf að mæta --- Vinnufriður
Alveg úti, fundaseta --- Óhófleg
Virðist hafa glatað mestum --- Orðaforða
Tjái mig með handapati --- Og dýrahljóðum
Reyndi að mute-a yfirmanninn --- Tekið illa í
Það var enginn power takki --- Framan á
Honum fannst það ekkert sniðugt --- Reyni líka að
Endurræsa hann, slökkva á honum --- Verksmiðjustilling!
Vildi að alltaf væri COVID
Vildi að alltaf væri COVID
Vildi að alltaf væri COVID
Vildi að alltaf væri CO
COVID
|
||||
10. |
Klósettpappírs-Pési
01:02
|
|||
Ég keypti drasl pappír
Notast við hásætið
Til styrktar íþrótta-
ferðar til Danmerkur
Fékk líka saltlakkrís
vart bætir ástandið.
Grænsvartur eðjuleir
vellur úr þarmholu
Helaumur hringvöðvi eftir
harðort klósettskjal
Örþunnur settpappír,
Fecall á fingur minn
Sápan frá sama stað
Skíturinn fer ekki af
Ígerð og graftarsull
Styðja við sport er bull
|
||||
11. |
Nammi nammi, heili heili
01:36
|
|||
Ofsóttur og uppnefndur
Einmanna uppvakningur
Sálarlaus og sjúkur í senn
Rotnandi, hungrar í ferska menn
Kjagandi, slefandi og banhungraður
Blóðvökvi, vessar og beinamergur
Heilastofn, miðheili og mænukylfa
Nammi, nammi, nammi, nammi, nammi, Heili!
Valdi þennan lífsstíl ei
Endurvakinn, það skein í bein
Holdlegri girnd ég haldin er
Þrái innvolsið úr höfði þér
Kjagandi, slefandi og banhungraður
Blóðvökvi, vessar og beinamergur
Heilastofn, miðheili og mænukylfa
Heili, heili, heili, heili, heili, Heili!
Ég er eins og ég er
Þó ég leggi mér menn til munns
Vonarstjarna blikandi
Stoltur afturlifandi
Heili, heili, heili, heili, heili, heili, heili, heili, heili
heili, heili, heili, heili, heili, heili, heili, heili, Heili!
|
||||
12. |
Senex homo
02:31
|
|||
Gamall maður kvartar yfir hæsi
Gamall maður tilbiður æsi
Gamall maður þjáður af ólæsi
Gamall maður með lamað þvagræsi
Senex Homo Calamitas
Gamall maður brenndur á báli
Gamall maður tapar veðmáli
Gamall maður svikinn af Njáli
Gamall maður sáldraði brjáli
Senex Homo Calamitas
Af safnhaug ertu kominn
Að moltu muntu verða
Af safnhaug ertu kominn
Að moltu muntu, að moltu muntu verða
Þetta var gamall maður
Óhóflega gamall maður
Jafnvel eldri en elstu menn muna
Ótrúlega gamall maður
|
Streaming and Download help
If you like Tuð, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp