Þurrkatíðin, þyrmir að mér
Þrusu þunnur á þriðjudegi
Gosvatnsvélin er alveg gaslaus
Frekar skrælna en drekk af krana
Hungrið! Það sverfur að mér
Matarskortur í malla mínum
Nautalundin er enn gaddfreðin
Verð að láta humar nægja
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Vandamál, vandamál, vandamál, vandamál
Innyflin í miklu ólagi
Skyndilega skelfileg skita
Ekkert rafmagn á síma mínum
Verð að lesa á sjampóbrúsa
Tæknin af mér tekur valdið
Síminn semur og sendir skeyti
Autocorrect reddar drætti
“Deig um köku afla smá flott í sloppinn”
HA? Nei. Ég ætlaði skrifa:
“Feigum sviðum ekki okkar pott í toppinn”
NEI!!!! Ég meinti
“Eigum við ekki að fá okkur gott í kroppinn?”
Fokk! Ég er búinn að klúðra þessu
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Þriðja heims skilningsleysi er grafalvarlegt vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Fyrsta heims vandamál eru líka vandamál
Vanda, vanda, vanda, vanda
Vandamál, vandamál, vanda-, mál
Adopting an optimistic, genre-fluid mindset atypical to most contemporary punk rock, the Aussies rage against the machine with glee. Bandcamp New & Notable May 2, 2024
From the first deadened cowbell to the last dissonant guitar interval, Dutch quartet Geo's new record is shaped for impact. Bandcamp Album of the Day Apr 25, 2024
Dead Cross, Retox, and Qui members dish out subversive hardcore with an indignant smirk; come for the riffs, stay for the synth experiments. Bandcamp New & Notable Mar 31, 2024